Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Vel meint klúður

Margrét bar bara velferð Þráins fyrir brjósti, hvað er málið? Þráinn tekur þessu á versta veg að sjálfsögðu, dramadrottningin sjálf.

Margrét þarf þó greinilega að passa sig, það er hægt að snúa út úr öllu á versta veg, jafnvel vel meintum umhyggjuhugleiðingum.

Þráinn er þó núna heppinn að hafa haldið í það að vera á tvennum launum, maðurinn sem fór í herferð gegn spillingu og sjálftöku. Hann heldur heiðurslaununum þó hann sé atvinnulaus. Í bili allavega.

Kannski hann geti gert bíómynd. Borgaralíf.

 P.S. eftir að hafa lesið pósta þessa fólks lítur þetta svona út fyrir mér:

Margrét segir við vinkonu sína sem þekkir Þráinn: "Er ekki allt í lagi með Þráinn, ég hef áhyggjur af honum." 

Þráinn kemst að þessari umhyggjuspurningu Margrétar og brjálast, hótar henni lögsókn, segir hana vera að vega að "lífi sínu og limum" með mannorsmorðstilraun, og hættir í þingflokknum.

Held að Þráinn hafi núna endanlega gert út af þær litlu vonir sem ég hafði um að hann væri eitthvað góður í pólitík.

PPS: Er búinn lesa doldið núna og sýnist sem að Margrét og þau hin séu ekkert saklaus af þessu og Þráinn sé ekki svo "sekur" eftir allt saman um þetta implode hjá Borgarahreyfingunni.


mbl.is Þráinn segir sig úr þingflokki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju í ósköpunum kaus ég hann?

Ég kaus Borgarahreyfinguna í síðustu kosningum. Að vissu leyti óánægjuatkvæði en yfir það heila leyst mér vel á hreyfinguna (og þau hafa staðið sig vel fyrir utan Þráinn). En Þráinn var sá sem bauð sig fram í mínu kjördæmi, Rvk Nor. og ég hugsaði þegar ég krossaði við Þráinn "hef illan bifur á þessum fír en hey, þetta er samt X-O".

Síðan þá hefur Þráinn ítrekað sannað að andlegur fyrirvari minn var á rökum reistur. Gaurinn rekst verr en Kiddi sleggja í flokki og þá er nú mikið sagt. Drullar feitt yfir sitt ágæta samstarfsfólk í flokknum í fjölmiðlum, ítrekað. Svarar engu þegar þau reyna að hafa samband við hann. Hann er, eins og sagt er á góðri íslensku, alger hálfviti.

En hin hafa staðið undir væntingum, Þór Saari sérstaklega. Ánægður með þau.

Þar sem ég kaus X-O syrgði ég það þó að geta ekki kosið Pétur Blöndal, minn uppáhalds þingmann. En X-D var bara ekkert inni í myndinni lengur. Maður kýs ekki flokk sem hefur drullað jafn feitt upp á bak og sá flokkur. 


mbl.is Vilja Þráin af þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Soffía Hansen/Halim Al all over again...

... nema hvað nú snýst taflið við.

Eins og mér þykir leitt að sjá svona fréttir og mál þá verð ég nú að staldra aðeins við hvað það er nú skrítið hvað Soffía Hansen og hennar aðstæður koma oft upp. En þetta gömul saga og ný og aldrei skemmtileg heldur hreint út sagt tregafull og sorgleg.

Merkilegt er þó að í þessari frétt kemur fram að í upphafi hafi þau haft sameiginlegt forræði. S.s. jafnan rétt gagnvart börnunum. Hún ákverður einhliða að stinga af frá USA og fara til Íslands (sem má ekki skv. íslenskum lögum allavega) og faðirinn fær ekki að sjá börn sín í eitt og hálft ár. Nú vill karl fullt forræði og skil ég það vel. Svona framkoma er núna að koma í bakið á Borghildi.

Hún hefði betur kannski sótt um varanlegt dvalarleyfi í USA og jafnvel ríkisborgararétt til að vera hjá sonum sínum. En það svona, þetta er aldrei einfalt.


mbl.is Íslenskri fjölskyldu vísað úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Japanir voru gífurlega grimmir og blóðþyrstir í styrjöldinni.

Það er merkilegt hvað heimurinn hefur vorkennt Japönum eftir útreið þeirra í seinni heimstyrjöldinni. Það vita allir sem vita vilja, og eru til í að lesa sig aðeins til um mannkynssögu, að Japanir voru gífurlega grimmir og viðbjóðslegir við þegna þeirra þjóða sem þeir hertóku í seinni heimstyrjöldinni. Reyndar var sú grimmd byrjuð löngu áður en látum það vera í bili.

Grimmd þeirra við þessar þjóðir er ógeðsleg. Þeir sem vilja fræðast aðeins um smá brot af því geta horft á heimildamyndina um framkomu Japana í Najing í Kína á Youtube. 

 Rape of Nanking Part I Atrocities in Asia Nanjing Massacre
 Rape of Nanking 2: Japanese Torture Beheading Rape Burning

Vill einhver skoða Dr. Mengele Japana, í massavís? Unit 731. Meir að segja brennsluofn á staðnum  Auswitch style. Þar voru þróuð efna og sýklavopn, vopn sem eru í sama klassa og kjarnorkusprengjur, weapons of mass destruction.
Unit 731 Japanese Torture & Human Medical Experiments 

Horfið á þessar myndir og munið: Svona var framferði Japana út um alla Asíu á þeirra hernumdu svæðum og þetta hefðu þeir gert við hverja sem þeir hefðu hertekið, hefðu þeir orðið sigursælir í stríðinu. Nanking er bara þekktasta dæmið og vel documentað. Skrítið, lítið er kennt um þetta í japönskum skólum og nýlega kom út kennslubók í Japan þar sem þessu var öllu hálf afneitað. Sé alveg fyrir mér Þjóðverja að reyna að afneita Helförinni. Not!

Það versta við þetta er að þessi viðbjóður viðgekkst með vitund almennings að nokkru leyti og japönskum stjórnvöldum að fullu leyti. Venjulegir Þjóðverjar vissu ekki af ódæðisverkum sinna manna.

Ég vorkenni Japönum ekki neitt fyrir að hafa fengið á sig tvær kjarnorkusprengur. Þeir fyrirlitu útlendinga þá og gera enn upp til hópa. Aftur á móti er sorglegt að með þeim viðburðum hófst kjarnorkuuppbygging í heiminum. 


mbl.is Hiroshima minnst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löggæsla er ein af grunnskildunum. BíBí, komdu aftur.

Mér finnst þessi tíðindi um hörmungarástandið í lögreglunni ekkert koma á óvart. Þetta er búið að vera svona í töluverðan tíma. MAÐUR SÉR EKKI LÖGREGLUNA LENGUR!!!!!

Einn kunningi minn fór á ökutæki sínu um daginn og sagði mér að hann hefði brotið fullt fullt fullt af umferðareglum. Hann var hvað mest hissa á því að hafa aldrei nokkurn tíma mætt lögreglunni í þessum atgangi sínum. Hann hefur áhyggjur af þessu, algerum ósýnileika lögreglunnar því hann veit vel að lögrelgan er að sinna fullt af þörfum verkefnum öðrum en að eltast við ökufanta sem sig.

Það er GRUNNSKILDA hins opinbera í öllum heiminum að gæta velferðar borgaranna. Grunnskilda! Löggæsla, dómstólar, Alþingi og heilbrigðismál eru hornsteinninn í þessu. Ekki ESB umsókn, ekki helmingsaukning í listamannalaunum, ekki fleiri háskólar, ekki LÍN, ekki listamannasnobbsýningar á Ítalíu (heitir það ekki Feneyingurinn?), alls ekki tónlistar- og ráðstefnuhús við höfnina, ekki aukin aðstoð við hælisleitendur, og margt margt fleira. Það eru lúxusvandamál, ekki grunnvandamál.

Ef  eitthvað er þá á að láta niðurskurð til lögreglunnar ganga til baka og bæta jafnvel við jafn miklu og átti að spara. Því vitið hvað?

Jú, í kreppu er það jafn víst að glæpir snaraukast og að nótt fylgir degi. Þetta er bara nærri því eðlisfræðileg staðreynd. Einnig fylgja aukin félagsleg vandamál sem lögreglan þarf að glíma við (heimilisofbeldi, óregla fólks etc).

Að skera niður hjá lögreglunni er jafn hálfvitaleg aðgerð og að skera niður grimmt í heilbrigðisgeiranum í miðri plágu. Þetta heitir á góðri íslensku að skíta upp á bak í beinni, að skera niður hjá lögreglunni.

Það liggur við að maður óski eftir því að Björn Bjarnason komi aftur í ríkisstjórn sem dómsmálaráðherra. Svona rugl og vitleysa hefði aldrei gerst á hans vakt, hvað svosem fólk hefur á móti honum út af öðrum málum. Því eitt er og verður alltaf kristaltært. BíBí hlúði vel að lögreglunni og gæslunni og gætti þeirra hagsmuna í hvívetna, vitandi vits að þarna væri á ferð alger grunnþjónusta við borgarana. 


mbl.is Lögregla komst ekki í útköll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breska ríkið eignast hlut, málsókn kannski í hættu?

Ég rak augun í það í þessari frétt að Royal Bank of Scotland eignast þarna hlut í Nýja Kaupþingi. Breska ríkið er langstærsti eigandi Royal Bank of Scotland. Maður veltir fyrir sér nú hvort málsóknin gegn bresku stjórninni út af fjandsamlegri greiðslustöðvun Singer og Friedlander (sú aðgerð sem felldi Kaupþing) sé nú í hættu.

Reyndar eignast RBS hlut í Nýja Kaupþingi, Gamla Kaupþing er í málshöfðuninni, þannig að þetta eru tveir mismunandi aðilar, en hei, maður spyr sig samt. 


mbl.is Í faðm erlendra bankarisa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ah shit, þar fór það. Í bili allavega

Ef þetta er rétt þá er þetta mikill missir fyrir formúluna og akstursíþróttir almennt. Já, jafnvel íþróttir almennt. Það er ekki mikið um það að karlar og konur keppi hlið við hlið á algerum jafnréttisgrundvelli. Jafnvel skákin er kynjaskipt. Danica Patrick vill ekki fara í stórustrákadeildina á forsendum sem lengi hafa loðað við þá mýtu að konur vilji ekki komast til metorða í starfi sínu á kosnað fjölskyldunnar.

Danica Patrick er langefnilegasta konan sem komið hefur fram í langan tíma til að vera bryxluð við Formúlu 1. Akstursíþrótt þar sem, tja, bestu ökumenn heims keppa. Það er ekki flóknara en svo. En hún vill ekki fara þangað. Ég er algerlega viss um að hún myndi sóma sér vel þar og standa sig vel, hún hefur sýnt fram á það hingað til að þetta hefur ekkert verið ókeypis hjá henni. Og ekki hefur hún verið neitt hrædd við að keppa við strákana hingað til, hefur sko aldeilis látið finna fyrir sér. En nei, hún vill ekki leggja á sig fjarverur og fjarlægðir frá sínum nánustu. Skil það vel svosum. En djöfull eru þetta samt mikil vonbrigði! Var að vona að hún myndi nú velgja þeim undir uggum og verða dóttur minni fyrirmynd (kannski).

Vonandi kemur hún samt í slaginn á endanum. Það væri frábær þróun eftir allt helv. ruglið undanfarið.


mbl.is Patrick vill ekki í formúluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann á ekkert skilið, þessi

Maðurinn var einn aðalmaðurinn í að gjörsamlega rústa þessu gamalgróna og (áður) stönduga fyrirtæki. Hann á ekkert, nákvæmlega ekkert, skilið. Annað en kannski námskeiðs í góðum siðum að læra að skammast sín fyrir öööööömurlegt og afdrífaríkt massaklúður. Skitið upp á bak í beinni eins maður segir.

Það væri frekar að fyrrum hluthafar Eimskips, fólkið sem á núna hlutabréf að markaðsvirði 0 kr. sem ætti að fara í mál við þennan Baldur fyrir að eyðileggja eigur þeirra. 


mbl.is Eimskip sýknað af kröfu Baldurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haugur af rangfærslum þarna og hræðsluáróðri

Mér finnst alveg magnað að lesa þenna texta. Hefur þetta fólk lesið tillöguna? Reiknað eitthvað af þessu? Séð að það EINA, sá EINI sem missir eitthvað eru einmitt lífeyrissjóðirnir, þeir fá ekki féð inn sem annars fer í skatta. Lífeyrisgreiðslur til fólksins skerðast akkúrat ekkert. EKKERT!! En þarna er verið að gefa í skyn að slíkt gerist og er ekkert annað en glórulaus hræðsluáróður.

Lífeyrissjóðirnir eru þarna skíthræddir út af þessari snilldartillögu Sjálfstæðismanna (Tryggva) og eru að slá ryki í augu fólks með þessu.

Og hvað með það þó að lífeyrissjóðirnir fái aðeins minna fé til að fjárfesta. Það fé fer í staðinn til að greiða niður skuldir, losa okkur undan vöxtum. Eftir stendur að lífeyrissjóðirnir hafa svoddan haug af fé milli handanna að þetta skiptir akkúrat engu máli fyrir þá.

Og svo er annað sem þetta blessaða fólk, sem samdi þessa yfirlýsingu sleppir. Og það er, að þegar öldurnar lægir, eftir svona 5-8 ár, þá er hægt að hörfa aftur í það að skattar verði greiddir eftirá. Þetta er einfalt tækniútfærsluatriði, að hætta að taka við inngreislum í leiðir sem eru með fyrirfram greidda skatta og stofna aðra alveg eins, sem er með eftirá greiddum sköttum. Skítlétt og hundeinfalt. En þetta fólk passar að nefna það ekki. Veit það kannski ekki hvernig Lífeyrissjóðir eru reknir, tæknilega? Það mætti halda það.


mbl.is Vilja ekki breytingar á skattlagningu lífeyrissjóðsgreiðslna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kolbrún fær þetta, spái ég.

Það er mín spá að Kolbrún Halldórsdóttir, sú kona hverra kjósendur höfnuðu í forvali VG og var mest strikuð út af VG fólki í kosningunum (heitir að skíttapa og vera hafnað harkalega) verði valin Þjóðleikhússtjóri. Það mun gera hennar vinkona, flokkssystir og samfemínisti, Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra og samráðherra í skamma stund.

Annars er listinn þessi:

Ari Matthíasson, leikari,
Hilmar Jónsson, leikstjóri,
Hlín Agnarsdóttir, leikstjóri og rithöfundur,
Kolbrún Halldórsdóttir, leikstjóri,
Magnús Ragnarsson, framleiðandi,
Páll Baldvin Baldvinsson, fulltrúi ritstjóra,
Sigurður Kaiser, framkvæmdastjóri og leikhúshönnuður,
Tinna Gunnlaugsdóttir, þjóðleikhússtjóri og
Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri.

Annars er annar kandídat þarna ansi sterkur, Þórhildur Þorleifsdóttir. Ef einhver á þessum lista á séns í að vera meiri femínisti og kommi en Kolbrún þá er það Þórhildur blessunin.

Ef svo ólíklega vildi til að Tinna verður ráðin áfram (leikstjóri, MBA gráða, búin að vera Þjóðleikhússtjóri í fimm ár), s.s. hæfasti aðilinn á listanum ráðinn, burtséð frá pólitík, þá skal ég skála í kaffi yfir því. En þangað til ætla ég að reikna með að frú Harkaleg-Höfnun fái brauðmola frá vinkonu sinni.


mbl.is Tíu sóttu um starf Þjóðleikhússtjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband