Fer maður þá ekki bara í fulla áskrift?

Er búinn að vera í helgaráskrift núna í doldinn tíma, og fíla vel. Mogginn er frábært dagblað. Miklu betra en Fréttablaðið, þó það sé einnig ágætt sem slíkt.

Nú kemur Dabbi inn sem ritstjóri. Eins og ég þoldi hann ekki sem Seðlabankastjóra, þá hafði ég ávalt mikið álit á honum sem stjórnmálamanni. Og rithöfundi. Og sem ritstjóri Moggans á hann eflaust eftir að brillera.

Sem seðlabankastjóri gerði hann nokkur mistök. Afdrífarík mistök. En sum voru ekki hans. T.d. er þessi fáránlega vaxtastefna Seðlabankans ekki hans barn, heldur afkvæmi m.a. núverandi Seðlabankastjóra. Og stefna Seðlabankans almennt er einn helsti áhrifaþáttur í hruni krónunnar. En Dabbi fór úr Seðlabankanum (ég var m.a. meðal mótmælenda þar). Og er núna að fara í það þar sem hæfileikar hans munu njóta sín, sem og tengsl. Hann er innvinklaður út um allt og mun lemja núna á Hrappi Vestmann (Jón Ásgeir) sem á hitt stóra blaðið og hina sjónvarpsstöðina. Hrappur Vestmann er einn helstu áhrifamanna í þessu hruni okkar. Munum það.

Ekki er ég að sjá Þóru og alla hina "góðu" "blaðamennina" okkar missa vatn yfir þeim eignatengslum. 


mbl.is Davíð og Haraldur ritstjórar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greiningadeild lögreglunnar

Þessi staða var mér fyrir löngu ljós. Vissi af þessu fyrir löngu síðan. Og þess vegna fannst mér sú harkalega gagnrýni sem Björn Bjarnason fékk þegar hann stofnaði greiningadeild, mjög ómakleg. Þeir sem hann gagnrýndu töldu um einhverja "njósnastarfssemi" vera á ferðinni. En svo er ekki, greiningardeildin var stofnuð einmitt til að berjast gegn glæpahópum og skipulagðri glæpastarfssemi.

Nú er ljósara en nokkru sinni áður hversu mikilvæg sú vinna er, að greina þessa hópa, tengsl milli þeirra og annarra erlendis, og stöðva þessa hópa.

Nota bene, við erum ekki að tala um pólska hópa. Nei, hópar af Rússum og Litháum hafa komið hingað til lands fyrir löngu síðan, í boði íslenskra "samstarfsaðila".


mbl.is Margir glæpahópar hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjúkkkkit

Gott að þetta var skilorðsbundið. Þeir þurfa þá að passa sig í tvö ár og keppa heiðarlega. Gott að þetta mál er búið. Og það er algerlega óafsakanlegt fyrir Briatore og co, já og Piquet líka, að hafa gert þetta.

En ég vorkenni svosum Briatore ekkert, hann hefur hnoðað barn í Heidi Klum. Slíkum mönnum þarf ekkert að vorkenna, þeir eru með þetta allt á hreinu. 


mbl.is Skilorðsbundið keppnisbann Renault
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tortola segir ekkert

Það að hafa setið í stjórn einhvers félags segir ekkert. Þetta er farið að verða eins og rasismi, ef Tortola er minnst á nafn fara allir á afturlappirnar og öskra blótsyrði, algerlega án þess að skoða hvað var á bak við.

Kúlulán er annað. "Kúlulán" er bara lán með eina massíva afborgun á enda lánstíma, og stundum líka með mjög hagstæða vexti? Kúlulán eru/voru/verða mjög algeng í vissum tilfellum. En nú er þetta orðið að  blótsyrði, aðallega hjá fólki sem hefur bara verið með venjuleg lán hingað til.

Nú fer mikið fyrir pólskum gengjum í afbrotum á Íslandi. Eigum við að tala um Pólverja eins og sumir tala um eyju í karabíska hafinu eða ákveðna lánategund? Hmmmmm? Nei, það er rasismi, rasismi er sprottinn af fordómum og fáfræði. Skoðum málin betur, kíkjum undir húddið.

Gylfi Arnbjörnsson hefur staðið sig mjög vel í starfi sínu hingað til. Þetta Tortola dæmi segir ekkert. Aftur á móti ef félagið hefur verið að makka sig við eitthvað vafasamt, þá skulum við tala saman. En þangað til ætla ég að leyfa Gylfa að njóta vafans, enda hefur hann unnið af heilindum hingað til. 


mbl.is Trúverðugleiki og heilindi að leiðarljósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er orðinn Sjalli á ný

Ég hef alltaf kosið Sjalla. Er í flokknum og er frjálslyndur frjálshyggjumaður (ekki ný-). Eftir hrunið í fyrrahaust og eftir að hafa horft á Sjalla/Samfó sitja sem fastast án afsagna né afsakanna, hætti ég að styðja Sjalla. "Right or wrong, my country" er ekki að finna á mínum mottóalista. Kom þá ekki Borgarahreyfingin fram á sjónarsviðið og ég studdi hana frá degi 1. Þekki pínu til frv. formanns og allt þetta fólk ljómaði af heilindum og hugsjón, talaði í lausnum og var réttsýnt og traustvekjandi. Kaus það svo í kosningunum, að sjálfsögðu. Setti m.a. x við Þráinn Bertels.

Fúlegg kom í ljós fljótlega eftir að þau byrjuðu að starfa. Ósátt, sundurlyndi og ósamræmi fór að vera skítkast og rifrildi í fjölmiðlum, yfir í klofning frá þingflokknum, yfir í að fólk flúði úr stjórn, yfir í að lög Borgarahreyfingunnar voru sett á aðalfundi sem gerðu hreyfinguna að raunverulega miðstýrðum flokki með flokksræði (ekki það sem að þetta gekk út á í byrjun), og allt þetta hefur nú gert það að BorgaraFLOKKURINN er orðinn þingmannalaus.

Fyrirgefið, þetta fólk er ekki hæft til að reka sjoppu, hvað þá starfa á þingi og sinna landsmálum.

"Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér". Þessi orð eru sönn og sígild. Og greinilega gleymd í röðum BorgaraFLOKKSINS. Og ég er löngu búinn að missa trúnna um að þetta verði nokkuð gáfulegt.

Er því orðinn Sjalli aftur. Með fyrirvara um að þeir starfi af heilindum. Allt hitt er eflaust fínt fólk, en ég á bara ekki hugmyndafræðilega samleið með. Þannig er nú bara það.


mbl.is Vilja Þráin aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta var svo augljóst brot...

...að það hálfa væri nóg. Hann traðkaði viljandi á honum. Fer svo og ögrar Arsenal leikmönnum. Gaurinn var bara úti að aka þarna. Eitthvað vantar í heiðursmanninn hjá honum á vellinum. Allavega þennan dag.
mbl.is Adebayor í þriggja leikja bann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og skattmann stelur engu?

Ár hvert fæ ég blað í hendurnar þar sem eru nákvæmar fjárhagsupplýsingar um mig forskráðar, að mér forspurðum. Þetta blað kemur frá Skattmann. Þessar persónunjósnir hefur hann stundað með löglegum hætti. Síðan birtir hann unnin gögn, s.s. tekjuskatta mína, á sumrin.

Þetta gerir hann að mér forspurðum og til þessa hefur hann lagaheimildir.

Löglegt? Já. Siðlaust? Já. Allavega sá hluti þar sem kvikindið birtir þær fyrir hvern sem er er sjá vill.

Skattmann er jafn nauðsynlegur og aðlaðandi þjóðfélagsþegn og ríkisböðull í löndum þar sem dauðarefsing er leyfð. Ill nauðsyn.

Ef hann héldi sig við að afla fjár fyrir ríkið með tekjuskatti og virðisaukaskatti þá væri ég sáttur. En skattmann fer með sínu loðnu, gráðugu, krumlur í hver skúmaskot þar sem fólk reynir að koma fé SÍNU og verðmætum þannig að það geti notið þess sjálft. Nei, skattmann vill sitt, slefandi gráðugt snýkjudýr. 

Til dæmis, ef ég fer strangt til tekið eftir skattalögum þarf ég að skrá afmælisgjafir og jólagjafir og gefa upp til skatts. Pælið í því. 


mbl.is Grunaður um upplýsingastuld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi mynd segir allt sem segja þarf

Jóhanna Sigurðardóttir  Ég veit að það er verið að vinna í þessu. En maður er farinn að verða langeygður eftir einhverju öðru en píslavottargöngunni sem kölluð er "greiðsluaðlögun".
mbl.is Vanskil aukast hratt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru Kommar hræsnarar eða hvað?

Ég ætla nú ekkert að fullyrða um að fólkið sem er að púa þarna séu örgustu VG kommar, en Idol Komma á Íslandi, Steingrímur J., var að skrifa undir miklu meiri einkavæðingu í orkumálum landans en Borgarstjórn og OR nokkurn tíma. Þá á ég við um það að Íslandsbanki á stóran hlut í Geysir Green Energy, og sá banki er á leið í hendur erlendra aðila að 95%. Þetta skrifaði Steingrímur undir og þannig er það. Og það var langbesta staðan í leiknum fyrir hann og þjóðina.

Sama á við um OR. Þau URÐU að selja hlutinn. Um það hefur verið kyrfilega fjallað. Og innlendir kaupendur að hlutnum buðu sig engir fram. Nada. Nix. Niente.

En ætli þessi samansöfnuður sé ekki af sama meiði og þyrptist niður í ráðhús þegar Sjallar tóku völdin í borginni aftur með klækjapólitík. Söfnuður sem fagnaði þegar Tjarnarkvartettinn beitti sömu meðölum, en varð brjálaður þegar sama meðali var beitt gegn Tjarnarkvartettinum.

Orð dagsins er því: Tvískinnungur. Ef meðalið var það sem verið var að mótmæla.


mbl.is Hróp gerð að borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fíkniefnalaust Ísland árið 2000 virkaði. Eða ekki.

Dæmalausar svona hugmyndir að boðum og bönnum endalaust. Það er margbúið að sýna fram á það að bann virkar EKKI. Hefur aldrei gert, alveg frá tímum Adams og Evu. Adam og Evu var bannað að éta af sannleikstrénu. Hversu margar persónur þurfti að hafa auga með? Tveim. Hver var að fylgjast með? Guð. Virkaði þetta? Nei!

Forvarnir í tóbaksvörnum hafa virkað rosalega vel undanfarna tvo áratugi. Höldum áfram á þeirri braut. Förum ekki á braut boða og banna gegn neyslu sem fólk velur og vill. Það hefur aldrei virkað. Ekki á epli, ekki á fíkniefni, ekki á áfengi, ekki á læknadóp, ekki á tóbak. Þetta bara virkar ekki og hefur aldrei gert.


mbl.is Hugmynd um að banna tóbakssölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband