Hvernig er hægt að halda þessu fram og taka sig alvarlega á sama tíma?

Þessi frétt er stórkostlega mikið skipsbrot í talnaúrvinnslu.

Teknar eru tekjurtölur Íslendinga skv. skattframtali, summað upp eftir kyni og dregnar ályktanir um laun út frá þeirri tölfræði. Sér enginn neitt athugarvert við þetta? I shall demonstrate hvernig þetta er bara kjaftæði.

Ég er með 100 kr. á klst. í LAUN. Kona mín einnig.

Ég vinn eina (1) klst. á mánuði, kona mín tvo (2).

Hún fær í mánaðartekjur 200 kr., ég 100.

Hún er s.s. með 100% hærri tekjur en ég þó við séum á sömu launum. En það er ekki hægt að taka afstöðu um laun okkar út frá tekjutölunum.

Sviðstjóri Jafnréttisstofu virðist gera þetta samt skv. þessari frétt. Og þessi vinna er unnin undir nýskipuðum framkvæmtastjóra Jafnréttisstofu, Kristínu Ástgeirsdóttur.

Svona rugl gerir ekkert annað en að gjaldfella aðra umræðu um launajafnrétti kynjanna og önnur jafnréttisbaráttumál. Þar að auki hefur verið bent á hversu kolrangt er að vinna þetta svona og tala svo um launamun út frá þeim niðurstöðum. En slík gagnrýni virðist ekki vera marktæk hjá hinnu háverðugu Jafnréttisstofu.


mbl.is Launajafnrétti árið 2072?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi framsetning á meintum launamun er ætlað að gera allt en að skapa upplýsta umræðu.  Það hefði verið mun gáfulegra ef framsetningin hefði verið með þeim hætti að vinnustundafjöldi kvenni næði vinnustundafjölda karla árið 2072.

Starfsmenn "jafnréttisstofu" hafa sitt lífsviðurværi af því að skurskæla og afbaka til að ná athygli og fá þannig meiri opinber framlög frá hinu opinbera.  Þessu fólki er nákvæmlega sama um hvað er rétt og rangt svo framarlega sem hægt er að kreista meira fé útúr almenningi í landinu.  Ef einhver dugur væri í stjórnvöldum væri þessum vesalingum varpað á dyr. 

Bjarni (IP-tala skráð) 23.11.2007 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband