3.7.2009 | 12:54
Hann á ekkert skilið, þessi
Maðurinn var einn aðalmaðurinn í að gjörsamlega rústa þessu gamalgróna og (áður) stönduga fyrirtæki. Hann á ekkert, nákvæmlega ekkert, skilið. Annað en kannski námskeiðs í góðum siðum að læra að skammast sín fyrir öööööömurlegt og afdrífaríkt massaklúður. Skitið upp á bak í beinni eins maður segir.
Það væri frekar að fyrrum hluthafar Eimskips, fólkið sem á núna hlutabréf að markaðsvirði 0 kr. sem ætti að fara í mál við þennan Baldur fyrir að eyðileggja eigur þeirra.
Eimskip sýknað af kröfu Baldurs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Er rét sem ég heyri að útlendingar séu að fara að eignast Eimskip?
Ólafur Þórðarson, 3.7.2009 kl. 13:06
Hæstiréttur mun koma honum til bjargar, vertu viss.
Finnur Bárðarson, 3.7.2009 kl. 13:29
Helstu kröfuhafar eru Landsbankinn og lífeyrissjóðir. En það eru líka einhverjir erlendir aðilar sem koma til með að eiga hlut.
Jamm Finnur, Hæstiréttur hlýtur að leiðrétta þetta rangindi. Algerlega :)
Sigurjón Sveinsson, 3.7.2009 kl. 14:21
Þessi maður á fullt skilið en það eru samt ekki peningar ef þú skilur mig....
Karma (IP-tala skráð) 3.7.2009 kl. 17:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.