30.3.2008 | 00:56
Orðinn faðir í þriðja sinn: Drengur fæddist í gær!
Okkur Elsu fæddist glæsilegur drengur í gær kl. 14:05. Hann er heilsuhraustur og allt gekk vel. Þeim mæðginum líður vel og við komum heim í dag.
Þessi ungi drengur er þriðja barn okkar hjóna, fyrir eigum við Bríeti (5) og Þengil (3).
Elsa var komin nærri tvær vikur framyfir, sett dagsetning á burð drengsins, skv. sérfræðingum, var 15. mars. 2008. En áætlaðar dagsetningar eru þeim galla háðar að vera áætlaðar og því fór sem fór eins og öllum áætlunum. Eitthvað fór fram úr. Eins og t.d. sett dagsetning. Nú, fyrst náttúran vildi ekki fylgja áætlunum þá var gripið til svokallaðrar "gangsetningar". Við Elsa keyrðum á Kvennadeild Landspítalans kl. 20 að kvöldi fimmtudagsins 26. mars og hetjan mín gekk til liðs við hinar frábæru ljósmæður sem þar vinna. Ég fór heim og beið tíðinda, því gangsetningar eru líka þeim annmarka háðar að ganga ekki alveg eins og áætlanir segja til um. Klukkan 05:00 hringdi síminn og Hetjan mín kallaði mig til leiks, "we are on" sagði hún.
Nú, ég burraði á staðinn og jú, eitthvað var byrjað, hríðarnar voru hafnar. Hetjan tók þessu með stóískri ró enda sjóuð kona í þessum málum. Ég var pollrólegur líka fyrst Hetjan var róleg. Dagurinn leið, og hríðar ágerðust. Til þess að gera langa sögu stutta þá endaði þetta allt með því að í heiminn kom ungur maður. Hann var glaðvakandi, undrandi og pollrólegur þegar hann fæddist og ég neita því ekki að ég brynnti músum þegar ég sá hann koma út og vera lagðann á maga mömmu sinnar.
Ég verð að segja eins og er að þetta er núna í þriðja skipti sem barn mitt kemur í heiminn á Fæðingardeild Landspítalans og alltaf verð ég svo fullur af ánægju með þá vinnu sem þær ynna af hendi, þessar ljósmæður sem þar starfa. Þær ljósmæður sem aðstoðuðu okkur mest voru þær Anna Sigga Vernharðsdóttir og Arney Þórarinsdóttir, ljósmæðranemi. Þær voru hreint út sagt frábærar!
Við áttum fyrstu tvö börnin í Hreiðrinu en þar sem gangsetningar geta ekki farið fram þar þá fæddist yngsta barnið mitt á almennu deildinni (eða hvað sem hún er nú kölluð) og við fórum svo yfir á Hreiðrið skömmu síðar. Við tókum síðan á móti smá heimsóknum okkar nánustu ættingja og að sjálfsögðu systkinum unga drengsins. Bríet og Þengill voru himin lifandi og spennt að hitta litla bróður sinn og létu vel að honum.
Í dag fórum við svo heim með unga manninn eftir að hafa verið útskrifuð af barnalækninum og ljóðsmóður Íslands, henni Rannveigu.
Það má skoða nokkrar myndir af unga manninum á ljósmyndasíðunni minni á sigurjon.net.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 01:10 | Facebook
Athugasemdir
Innilega til hamingju með unga manninn!
bestu kveðjur (frá gömlum spjallfélaga á málefnum) :)
Stefán Friðrik Stefánsson, 30.3.2008 kl. 01:45
Hjartanlega til hamingju með hat-trikkið
Bestu kveðjur frá mér, Hugborgu og börnunum til þín, Elsu og barnanna!
Jón Agnar Ólason, 30.3.2008 kl. 01:50
Innilega til hamingju með þetta kraftaverk! Já, þetta er sko jafn magnað í hvert sinn. Gullfallegur drengur!
Kveðja
Inga Rós, gömul Lailu vinkona, sem nú bíður einmitt fæðingar 5.barnsins :o)
Inga Rós (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 17:58
Innilega til hamingju! Glæsilegur drengur!
Róbert Badí Baldursson, 31.3.2008 kl. 09:20
Innilega til hamingju höfðingi !!!
Guðsteinn Haukur Barkarson, 31.3.2008 kl. 15:23
Hamingju óskir! Frábært að heyra þetta.
Mofi, 31.3.2008 kl. 15:27
Loksins, loksins.
Ég óska ykkur Elsu innilega til hamingju með þennan merka lífsáfanga!
Þarfagreinir, 31.3.2008 kl. 15:49
Til lukku með ný-manninn!
Hann er algert yndi, enda ekki við öðru að búast. Erfitt að vera svona langt í burtu þegar kraftaverkin koma í heiminn, en svona er þetta!
kveðja úr austrinu
Krissa og co
Kristborg Bóel Steindórsdóttir, 1.4.2008 kl. 17:57
Til hamingju með ríkidæmið gamli :-)
Don Pedro (IP-tala skráð) 6.4.2008 kl. 23:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.