Hann lýgur þessu!

Ef menn skjóta af byssu milli skipa, og ætla að hitta eitthvað annað en sjóinn, gera þeir það með riffli. Riffillskot stoppar ekki á venjulegum skotheldum vestum, það fer í gegn öðru megin og út hinum megin sem smjör sé, og skaðar að sjálfsögðu þann sem í vestinu er. Eina leiðin til að stöðva riffilskot er þegar kevlarplötum er raðað á vestið. Og mig grunar sterklega að Hr. Paul Watson hafi ekki verið í slíku því það er bæði mjög þungt og einnig mjög heftandi fyrir hreyfingar. Þekki þetta ágætilega, var í svona vestum svo mánuðum skipti við friðargæslu, bæði í frv. Júgóslavíu og svo í Mið-Afríkuríki. Vestið fullhlaðið kevlarplötum er u.þ.b. 15 kg.

Einn félagi minn í frönsku útlendingaherdeildinni féll í skotbardaga þó hann hafi verið í vesti, kúlan fór í gegn því hún lenti einmitt á stað þar sem ekkert kevlar var til að verja gegn rifflum.

Af einhverjum sökum grunar mig að Paul Watson hafi ekki verið í neinu vesti. Hafi hann verið í vesti, með kevlar plötum, og fengið kúlu í sig, þá er hann ekki bara meiddur, með brotin rif, heldur verður auðvelt fyrir hann að sanna þetta þegar í höfn kemur.

En sporin hræða og ég trúi ekki orði sem þessi maður né þessi samtök segja.

Online poker Free online poker games, tournaments, rules
hollidaycasino.com hollidaypoker.net dochollidaypoker.com
mbl.is Varð Paul Watson fyrir skoti?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnþór Guðjón Benediktsson

Samt einhvernveginn er maður að vona að Japanir séu að skjóta á Watson, hann á ekkert gott skilið. Hann er búinn að eyðileggja svo mikið fyrir náttúruverndarsinnum,  sem margir eru farnir að líta á sem hálfgerða hryðjuverkamenn.

Arnþór Guðjón Benediktsson, 9.3.2008 kl. 07:13

2 identicon

Hér hefði mátt miða á hausinn. Og er ég þó dagfarsprúður maður.

DonPedro (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 12:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband