Tölvuníðingar

Nú er búið að búa til orð eins og tölvuþrjótar, tölvuglæpir og einelti á netinu. Ég var að keyra heim um daginn og datt í hug hvort búið væri að skilgreina tölvuníðinga.

Tölvuníðingur er maður/kona sem  beitir tölvu á níðingslegan hátt gegn tölvunni sjálfri. Það sem tölvuníðingur gerir er að:

  • Keyra forrit þar sem örgjörvinn fer í 100% í langann tíma til að sjá hvort tölvan svitni eða emji undan álaginu. Þeir verstu gera þetta á sama tíma og þeir over-clocka örgjörvann.
  • Hellir vökva yfir tölvuna til að láta reyna á hvort hún brenni yfir eða ekki.
  • Stingur hlutum, öðrum en geisladiskum, í geisladrifið, til að sjá hvað gerist.
  • Sparkar og slær í tölvuna og jaðartæki til að sjá hvort eitthvað bili.
  • Over-klokkar örgjörvann að staðaldri.
  • Beitir tölvunni almennt á máta sem er ekki gott fyrir vélbúnaðinn og getur líklega orsakað eyðileggingu vélarinnar.

Nú þurfa bara vandamálasérfræðingar að skilgreina sjúkdóm sem heitir "tölvuníðingsheilkenni" og flokka fólk í þann hóp, sem og stofna stuðningshóp fyrir TA.

Tölvuníðingar anonymous.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband