11.10.2011 | 13:26
Bann virkar verst, forvarnir best
Það er eitt sem maður sér fljótt á litið við þessa frétt: Bann við óæskilegum efnum virkar verst, forvarnir best.
Langbesti árangurinn í þessari rannsókn í að minnka neyslu þessara efna sést á áfengi og tóbaki. Minnstur árangur er í að minnka neyslu hassins.
Þó ber að geta að hassið er ólöglegt og mikið púður fer í að fylgja því banni eftir, fyrir utan refsiramman og fangelsun. Það sem langbest gengur að minnka eru efni sem eru lögleg en undir miklu eftirliti og takmörkunum í hversu auðfengið það er.
- Nærri 79% árangur fæst af forvörnum
- Nærri 24% árangur fæst af banninu
1998 | 2011 | pr.stig | munur % | |
Daglegar reykingar | 23% | 5% | 18 | 78,3% |
Áfengi sl 30 daga | 42% | 9% | 33 | 78,6% |
Prófa hass | 17% | 13% | 4 | 23,5% |
Þó ber að fagna þessum árangri í að minnka neyslu kanabisefna. En ef við berum saman hrátt árangur með forvörnum gegn löglegum efnum annars vegar og svo algeru banni hins vegar, þá sést ágætlega hvort skilar meiri árangri. Og munurinn er hrikalega mikill!
Hér eru smá skilaboð frá LEAP, Law Enforcement Against Prohibition
![]() |
Færri drekka og reykja hass |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:56 | Facebook
Athugasemdir
Ég er alveg sammála þér.
Og þetta er satt og rétt.
Minnkum foræðishyggjuna og eflum forvarnir.
Sleggjan og Hvellurinn, 11.10.2011 kl. 17:08
Hass er ekki það sama og gras, þótt bæði séu búinn til úr sömu plöntunni.
Unglingar gera greinarmun á þessu. Þetta skekkir könnunina talsvert.
Svipað og ef spurt væri : Hefur þú prófað vodka? Svarið gæti verið nei þótt að viðkomandi hafi smakkað smirnoff ICE.
Siggi (IP-tala skráð) 11.10.2011 kl. 23:51
Og þegar spurt er um áfengi þá segja þeir nei vegna þess að þau drekka landa
Svo halda þeir að reykingar sé að tala sé um að reykja krakk og segja því nei.
Djös rugl er í þér.
Sleggjan og Hvellurinn, 12.10.2011 kl. 08:07
Rugl?
"Og þegar spurt er um áfengi þá segja þeir nei vegna þess að þau drekka landa"
Áfengi er yfirheitið sem vodka gengur undir.
Seinni fullyrðingin fjallar um tvo mismunandi hluti.
Hass er ekki það sama og gras. Heldur tvær afurðir af sömu plöntu, Kannabis væri rétt yfirheiti.
Sjálfur hef ég ekki reykt hass í mörg ár, en hef fengið mér gras af og til.
Siggi (IP-tala skráð) 12.10.2011 kl. 21:34
þín kenning er sú að áfengi og reykingar hafa dregist um nær 80% en kanabis reykinar staðið í stað?
Sleggjan og Hvellurinn, 13.10.2011 kl. 08:13
Hvaða kenningu setti ég fram?
ég var bara að benda á galla í könnuninni, sem hefði auðveldlega verið hægt að koma í veg fyrir. Og skilað könnuninni áreiðanlegri niðurstöðum.
Siggi (IP-tala skráð) 13.10.2011 kl. 08:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.