Má ég líka hunsa lög og reglur?

Þetta er merkilegt mál. Allir borgarar og íbúar Reykjavíkur, tja, allra sveitafélaga, þurfa leyfi og samþykktir til að reisa mannvirki og standa í meiri háttar aðgerðum, hvort sem er á sinni eigin lóð eða fyrir utan hana.

Nú lítur út fyrir að sá ágæti maður, Hrafn Gunnlaugsson, hafi reist alls kyns mannvirki án tilskilinna leyfa. Má ég þá gera það líka?

Mátti þá Kári Stefánsson reisa grindverkið sitt í Skerjafirði hér um árið? Mátti þá fólkið, sem þurfti að rífa bústaðinn sinn vegna þess að einhver hluti hans var byggður án tilskilinna leyfa, byggja þetta eftir allt saman?

Hvernig er það, gilda lög og reglur fyrir suma en ekki aðra?

Er þetta nýja Ísland? Þar sem öll dýrin eru jöfn, en sum eru jafnari en önnur?

Ég hef gaman af Hrafni og hans verkefnum og pælingum. Það væri samt óskandi að hann myndi gera það í sátt við borgaryfirvöld, eins og allir íbúar landsins þurfa að gera. 


mbl.is Hrafn fær líklega frest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vendetta

Ég held að það verði enginn missir að þessu helvítis drasli þarna sem Hrafn kallar listaverk.

Vendetta, 19.4.2010 kl. 13:06

2 identicon

Mátt þú hunsa lög og reglu segir þú... well.. Til þess að ná stöðu Hrafns þarft þú gera afspyrnulélegar bíómyndir og verða ofmetin til fjandans af þjóðrembusvínum með enga listrænan smekk..
Þá getur þú snobbast eins og Hrafn ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 19.4.2010 kl. 13:38

3 Smámynd: Einar Guðjónsson

Lög og reglu gilda bara fyrir okkur smáfólkið. Borgaryfirvöld sjálf hafa kallað á virðingarleysi borgaranna gagnvart lögunum enda regla en ekki undantekning að þau

brjóti stjórnsýslulög og skipulags og byggingarlög. 

Einar Guðjónsson, 19.4.2010 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband