Björn Bjarnason hafði þá rétt fyrir sér...

...þegar hann stofnaði Greiningardeild ríkislögreglustjóra?

Skrítið, því nóg var af bloggurum og álitsgjöfum, fólki sem elskar að hata Björn Bjarnason, sem fullyrti að þarna væri Björn að fara að "njósna um borgaranna" eða þaðan í verra.

En það vissu menn sem vita vildu að skipulögð glæpastarfssemi var lööööööngu komin til landsins þegar Fáfnirsmenn t.d. voru hvað mest í blöðunum, Fáfnir sem nú er orðið Hells Angels prospects. Þetta vissi Björn, þetta skildi hann, og vissi, að þetta myndi leiða til þess sem við erum að horfa á í dag. Innbrotsfaraldur á stærðargráðu sem við höfum aldrei séð áður. Og skipulagt vændi með mannsali. Viðbjóður!!!

Eigum við ekki að bölva Birni Bjarnasyni aðeins meira? Ha? Einum besta, og líklega misskildasta, ráðherra sem við höfum haft. Bæði í Menntamálaráðuneytinu og í Dómsmálaráðuneytinu (ef við undanskiljum EINA dómararáðningu, sem er dropi í hafið af því sem kallinn gerði rétt og vel). 


mbl.is Götuvændi stundað í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Hjartanlega sammála þér! Og svo hef ég ekki bofs meira um það að segja.

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 16.10.2009 kl. 14:07

2 identicon

Sennileg er Björn Bjarnason sá besti ráðherra sem þetta land hefur átt, fyrr og síðar. Björn var ótrúlega afkastamikill og duglegur ráðherra. Svo hafði hann bæði yfirsýn og kjark til að vinna að þeim málum sem honum voru falin. Gott dæmi þar um er lögreglustjóraembættið á suðurnesjum. Hver man ekki eftir hávaðanum sem þar var þegar átti að taka á fjármálum og faglegu skipulagi þess embættis. Nú starfar þetta embætti innan fjárlaga og er stjórnað af kvenvíkingi sem stendur sig með miklum ágætum. Þörf áminning SS.

Egill Jón Kristjánsson (IP-tala skráð) 16.10.2009 kl. 14:34

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Algerlega sammála.  Enginn veit hvað átt hefur, fyrr en misst hefur.  Björn var afburðaráðherra, bæði sem menntamála- og dómsmálaráðherra.

Níðher Baugsmafíunnar tókst vel upp við að rægja Björn, en sagan mun dæma Björn að verðleikum.

Axel Jóhann Axelsson, 16.10.2009 kl. 14:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband