Ef jafnaðarmaður hefði stýrt Titanic

Ef skipstjóri Titanic hefði verið félagshyggjumaður/jafnaðarmaður þá hefði hann skv. hegðunar- og ákvarðanamynstri jafnaðarmanna, ekki hleypt neinum í björgunarbátana þegar skipið var að sökkva.

Já, það voru nefnilega ekki til björgunarbátar fyrir alla. Þá er það svoleiðis skv. jafnaðarmennskunni að ekki má mismuna fólki. Allir eiga að vera jafnir og hafa jafnan aðgang að björgunarbátum.

Þar sem ekki var hægt að tryggja aðgang allra að björgunarbátum þá hefði skipstjórinn komið því þannig fyrir að enginn færi neitt. Það væri ójafnræði og mismunum á farþegum. Skamm skamm. Nei, ekkert svoleiðis. Jöfnuður er ordre de jour, enginn í bátana þá.

Jafnaðarmenn eru yndislegt fólk og ég á helling af vinum sem telja sig til jafnaðarmanna. En þessi hugsunarháttur er bara algert tjón fyrir þessa annars fallegu hugsjón. Allir jafnir. Í vandræðunum og skítnum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Góður! Frábær lýsing á t.d. Ögmundi.  Það er reyndar farið að vera svolítið erfitt að vera vinsæll Ögmundur þessa dagana

Sigrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 25.6.2009 kl. 09:59

2 Smámynd: Héðinn Björnsson

Ef Jafnaðarmaður hefði verið við stjórn Titanic hefði verið séð til þess að nóg af björgunarbátum hefði verið um borð og kannski verið siglt á hóflegum hraða og því verið hægt að stýra framhjá ísjökunum og komast hjá því að skipið sykki.

Héðinn Björnsson, 26.6.2009 kl. 16:04

3 Smámynd: Sigurjón Sveinsson

Já, Héðinn, það má vel vera. Og vonandi hefur svo verið í sögunni. Breytir samt ekki samlíkingunni. Allavega ekki fyrir mér :)

Sigurjón Sveinsson, 29.6.2009 kl. 13:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband