Áttu við lög og stjórnarskrá?

Kerfið flækist fyrir. Það var og.

Svona svo það sé á hreinu: Það má ekki gera það sem Björk og Jón vilja gera nema að Magma verði bættur að fullu "skaðinn". Svo segja lög landsins. Svo segir stjórnarskrá landsins. Svo segir EES samningurinn (við erum í ESB aðildarviðræðum btw). S.s. ríkið þarf að borga þetta á einn eða annan hátt. Er það kerfið sem Björk er að tala um? Það þarf að skera mun meira niður og setja á mun meiri skatta til að dekka afborganir af þessum lánum, sem eru að lágmarki 33 milljarðar. Er það kerfið sem Björk er að tala um? Skattkerfið sem endar í vösum almennings svo að hugarefni hennar verði að veruleika? 

Við finnum fyrir sársaukanum sem núverandi niðurskurður og skattahækkanir valda okkur. Vill Björk meira? Eða er kerfið að þvælast fyrir henni, Jóni og Oddnýju? 


mbl.is Kerfið þvælist fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

ég held að kerfið sem hún er að tala um sé kerfið sem gaf Magma Energy 3 milljónir USD fyrir að kaupa HS Orku og fyrir að skrá skúffufyrirtækið í Svíþjóð en ekki á Íslandi.  Þessar 3 milljónir USD stóðu ekki innlendum fjárfestum til boða, þannig að innlendir fjárfestar hefðu þurft að borga hærra verð en erlendir fjárfestar.

Er kerfið í lagi?

Lúðvík Júlíusson, 17.1.2011 kl. 15:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband