27.8.2009 | 15:38
Er þetta ekki dæmigert fyrir umræðuna í dag?
Að þeir sem gagga hæst eru þeir sem hafa "rétt fyrir sér"?
Skv. þeim sem voru með hávaðan þá hafði HHG ekki rétt fyrir sér, heldur þau, og skyldi þaggað niður í honum.
Ég þoli ekki HHG, en Guð minn góður hvað það er ömurlegt að hann virðist ekki hafa jafnan rétt til að tjá sig og "sumir".
Erum við ekki jafn rétthá í þessu þjóðfélagi? Eða eru sumir rétthærri en aðrir? Er HHG ekki jafn rétthár er kemur að því að mótmæla? Tala við "blaðamenn".
Ég er stoltur af því að hafa tekið þátt í mótmælunum á sínum tíma. Mér finnst þó svona skoðannakúgun vera sorgleg.
![]() |
Aðsúgur að Hannesi Hólmsteini |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.8.2009 | 07:54
Þá verður ekkert gert
Fyrst ekki má mismuna (eins og Gylfi segir) þá verður ekkert gert. Því þetta er gallinn við "ómismunum", að í enda dags verður þá ekkert gert fyrir einn né neinn.
Því eins og ég hef sagt áður, þá heldur "ómismunun" öllum í aðgerðarleysi.
Ég tók þetta fram í þessari færslu, og endurtek hana hér:
Ef skipstjóri Titanic hefði verið félagshyggjumaður/jafnaðarmaður þá hefði hann skv. hegðunar- og ákvarðanamynstri jafnaðarmanna, ekki hleypt neinum í björgunarbátana þegar skipið var að sökkva.
Já, það voru nefnilega ekki til björgunarbátar fyrir alla. Þá er það svoleiðis skv. jafnaðarmennskunni að ekki má mismuna fólki. Allir eiga að vera jafnir og hafa jafnan aðgang að björgunarbátum.
Þar sem ekki var hægt að tryggja aðgang allra að björgunarbátum þá hefði skipstjórinn komið því þannig fyrir að enginn færi neitt. Það væri ójafnræði og mismunum á farþegum því hann vissi vel að ekki var pláss fyrir nærri því alla farþegana. Skamm skamm. Nei, ekkert svoleiðis. Jöfnuður er ordre de jour, enginn í bátana þá.
Jafnaðarmenn eru yndislegt fólk og ég á helling af vinum sem telja sig til jafnaðarmanna. En þessi hugsunarháttur er bara algert tjón fyrir þessa annars fallegu hugsjón. Allir jafnir. Í vandræðunum og skítnum.
![]() |
Greiðsluviljinn að hverfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |