Færsluflokkur: Ferðalög
8.1.2008 | 11:06
Varúð! Skólabörn
Ég var að aka heim frá vinum mínum í Mosfellsbæ, þegar mér varð það á að aka framhjá skóla. Þar hafði einhver sýnt þá fyrirhyggju að setja upp skilti til að vara ökumenn við. Á skiltinu stóð "Varúð! Skólabörn".
Ég gaf í, svo þessi skólabörn myndu nú ekki ná mér og slapp í gegn, ómeiddur. Og það þrátt fyrir að búið væri að setja hindranir á veginn, nokkurs konar stuttar, skarpar hæðir með þrengingum. En mikið lifandi skelfing var ég skelkaður.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 19:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)