Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
23.10.2008 | 23:33
Stríð að hætti George Bush
George Bush og félagar lugu upp á Íraka gereyðingarvopnum og stuðningi við Al-Qaida til að geta afsakað innrás í Írak, og fengu stuðning til þess frá m.a. okkur Íslendingum.
Eftir að hafa lesið samtal þeirra tveggja ráðherra er það greinilegt að breska heimsveldið er ekki búið að gleyma neinu í hvernig á að svínbeygja minni máttar og notar til þess aðferðir sem George Bush notaði. Ljúga upp á þá þjóð sem skal ráðast á sem afsökun fyrir innrásinni.
Það kom margoft fram í samtali Darling og Árna að við myndum standa við okkar lagalegu skuldbindingar en við værum í erfiðum málum og þyrftum að komast að einhverju samkomulagi. Darling játti meir að segja því að hann skildi þetta.
Kemur hann svo ekki daginn eftir og ræðst á okkur með hryðjuverkalögum og efnahagslegum stórárásum. Eyðilagði eina bankann okkar sem var eftir, banka sem væri sem gull í hendi þessa dagana í þessum aðstæðum, hefði hann fengið að lifa.
Fyrir þá sem taka afstöðu með Darling og gegn Árna í þessu stríði held ég að ég láti mynd segja meir en önnur orð.
Ung stúlka í Frakklandi, sem svaf með óvininum, fær hársnyrtingu eftir lok seinni heimstyrjaldarinnar.
![]() |
Samtal Árna og Darlings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.10.2008 | 11:09
Er tími félagshyggjunnar liðinn?
Berlínarmúrinn féll 1990, og þar með féllu Sovétríkin. Var þá tími sósíalismans og félagshyggju liðinn?
Svarið er jafn mikið NEI og svarið við titilspurningu þessarar greinar. Vissulega upplifum við erfiða tíma núna en tími frjáls markaðar og einstaklingsfrelsis er langt frá því að vera liðinn. Það sem við erum að upplifa núna er afleiðing þess þegar ákveðið stjórnleysi fer á markað og hleypir markaðinum fram úr sér.
Frjálshyggja er ekki það sama og stjórnleysi.
![]() |
Er tími frjálshyggjunnar liðinn? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.10.2008 | 11:11
...og kaupir í Nýja Kaupþíngi
Smá spá: Lífeyrissjóðirnir og Sheikh Mohamed Bin Khalifa Al-Thani slá saman og kaupa rekstur og eignir Kaupþings hér á landi. Eignarhlutfallið verður 51% hjá lífeyrissjóðunum og 49% Sheikh.
Einnig má vera að hans hátign verði í slagtogið við aðra fjárfesta eins og Ólaf Ólafsson.
Þessir aðilar vita hvaða kraftur býr í Kaupþingi og vilja halda áfram, rísa úr rústunum. Safna liði og hefna.
![]() |
Sjeik hættir við Alfesca |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.10.2008 | 16:17
Ég sendi honum email
Ég ákvað að senda þessum manni eftirfarandi mail:
Dear Mr. Krugman.
At the same time I wish to congratulate you on your Nobel's price I want to make a remark to your article on Gordon Brown. You probably know what is happening here in Iceland. Just when we had the hope that our biggest bank, and probably the best run bank of them all, Kaupthing Bank, might survive the credit crunch, British government stepped in and ruined it all, with a very stupid and unfair move. The British government caused the demise of Kaupthing Bank last Wednesday, pure and simple, and at the same time, caused great harm to British savings owners, British creditors to Kaupthing, Kaupthing share holders and a huge damage the small nation of Iceland.
Maybe you want to contact the prime minister's information center through postur@for.stjr.is and get more details about this. You see, maybe Gordon Brown is doing the right thing for Britain's financial market, but he took a small nation, Iceland, and gutted it to gain political clout. Maybe it has nothing to do with economics, but it has everything to do with justice and decency.
Respectfully yours,
Sigurjon Sveinsson,
Kaupthing Bank.
![]() |
Nóbelsverðlaunahafi telur Breta vísa veginn út úr kreppunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.10.2008 | 09:57
Látum þá blæða, bölvuðum!
Það er ekkert annað í stöðunni en að fara í mál gegn Bretum á þessari stundu. Láta þessi dónalegu helvíti blæða fyrir að taka langstærsta fyrirtæki landsins, fyrirtæki sem gat með sínum skattgreiðslum einum rekið allt menntakerfið okkar eins og það lagði sig, og setja það á hausinn fyrir pólitísk prik.
Það þarf líka að koma breskum almenningi, sem tapar fjármunum á hruni Kaupþings í Bretlandi, í skilning um það að ef þau eru reið, snúa sér að Brown og Darling. Það voru þeir sem settu Kaupþing á hausinn, ekki Íslendingar.
![]() |
Ríkið íhugar að fara í mál vegna Kaupþings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.10.2008 | 16:35
Stríð hafa hafist af minna tilefni
Kaupþing stóð vel. Átti lausafé til að standast skuldbindingar fram í tímann, bæði í EDGE og gagnvart öðrum lánadrottnum. Þannig að þessi fjandsamlega greiðslustöðvun í Bretlandi, byggð á lögum um hryðjuverk, var algerlega án nokkurra forsendna.
Stríð hafa hafist vegna minni aðgerða af jafn fjandsamlegum toga. Vita þessir menn í Bretlandi ekki að þeir voru í fyrradag að svipta íslenskri þjóð banka sem var 1000 milljarða virði? Því ég er viss um að þeir vissu nákvæmlega hvað þeir voru að gera. Fjandsamleg greiðslustöðvun jafngildir því að banki sé kominn í þrot, standi ekki við skuldbindingar sínar. Svo einfalt er það.
Svo segir Geir lítið annað en að honum þyki þetta leitt, hann sé fúll en ætli að taka þessu og biður þennan djöfulsins hund, Alistair Darling, að vinsamlegast leifa öðrum viðskiptum að halda áfram.
Það mætti bera þetta saman við að einstaklingur sem barinn er sundur og saman biðji ofbeldismanninn vinsamlegast að leyfa sér að vera vinur hans áfram.
Hvar er stoltið? Hvar er víkingurinn í Geir H. Haarde? Er hann alveg tannlaus?
Það á að taka sendiherra Breta hér á Íslandi, tjarga hann og fiðra, stimpla með terrorista stimpli á rassgatið og henda honum í sjóinn, gefa honum færi á að synda heim. Þannig á að afgreiða pólitíska fulltrúa stjórnar sem kemur svona fram við okkur.
![]() |
Mjög óvinveitt aðgerð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.9.2008 | 17:29
Báknið tútnar nema þar sem þarf
Við skulum hafa eitt alveg á hreinu. Að vernda borgaranna er ein frumskilda hins opinbera. Lúxusverkefni og gæluverkefni ráðherra og embættismanna eru það ekki.
Því orkar það mjög undarlega að á meðan að báknið tútnar og tútnar út, með stóraukinni fjölgun opinberra starfsmanna, þá situr á hakanum að veita fé í eitt af því sem er grunnskilda ríkisins. Löggæsla.
Má vel vera að Björn þurfi að sníða stakk eftir vexti, og fái ekki meiri peninga og þurfi því að veita lögregluembættunum svona mikið aðhald. En það er þá verkefni sem Björn þarf að leysa. Hann hefur reyndar fengið mun meira fé til Landhelgisgæslunnar en var. En lengi má gott bestna (eins og maður segir á góðri íslensku).
![]() |
Mulið undir Ríkislögreglustjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.9.2008 | 15:50
Þegar stjórnmálamenn beita fyrir sig hagsmunasamtökum
Þetta er merkileg frétt. Þarna er BSRB að vara við frumvarpi. Látum liggja milli hluta að fjalla um frumvarpið sjálft. Skoðum aðeins hvað liggur að baki þessari tilkynningu frá BSRB.
Það fer ekki milli mála að þeir á þingi sem hæst andmæla þessu frumvarpi eru Vinstri Grænir. Fer þar þingflokksformaður þeirra, Ögmundur Jónasson, fremst í flokki. Hann hefur ekki legið á þeirri skoðun sinni að þetta frumvarp heilbrigðisráðherra sé slæmt.
Kemur svo fram tilkynning frá BSRB um þetta. Þarna er BSRB að blanda sér beint í landspólitíkina. En hver er formaður BSRB? Það er sjálfur Ögmundur Jónasson.
Reyndar er nafn Helgu Jónsdóttr, framkvæmdarstjóra BSRB, sett í fót skjalsins (pdf) en það breytir ekki því að fingraför Ögmundar eru út um allt á þessu skjali.
Þó ég beri mikla virðingu fyrir Ögmundi Jónssyni þá finnst mér alltaf hundleiðinlegt þegar hann beitir BSRB, þar sem hann er búinn að vera formaður núna í mörg, mörg ár, fyrir sig í landspólitíkinni.
Skrítið þó, eða kannski ekki, að blaðamenn moggans reyna ekkert að fjalla um þennan flöt málsins. Myndu þeir kannski frekar gera það ef (fræðilegt dæmi) Ásta Möller, sem fyrir stuttu síðan átti hjúkrunarþjónustufyrirtæki, myndi beita sér fyrir því að greiða götur þessa frumvarps? Myndi heyrast hljóð úr horni þá? Held nú betur!
![]() |
Varar við afgreiðslu frumvarps um sjúkratryggingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.9.2008 | 14:07
Klám!!!
"Næstu skref Vesturveldanna í Georgíudeilunni gætu skýrst eftir för Dick Cheney, varaforseta Bandaríkjanna, til Georgíu og Úkraínu í vikunni. Bæði ríkin hafa sóst eftir inngöngu í Atlantshafsbandalagið, NATO, og er förinni öðrum þræði ætlað að stappa stálinu í Georgíumenn."
Dick að stappa stálinu í Georgíumenn? Er þetta ekki einum of mikið klám?
Ef við þýðum á ensku: "Dick stuffs the steel into Georgia" ? "Stuffing Georgia with Dick Steel" ?
Ég vill ekki sjá "Stappa stálinu" notað svona aftur án þess að verið sé að meina kynlíf. Þetta er alveg þarna uppi með að "hlaupa í skarðið"; kynlíf með atrennu.
![]() |
Stappar stálinu í Georgíumenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.7.2008 | 09:53
Sá yðar sem syndlaus er...
Mér finnst kostulegt að Bandaríkjamenn séu að rífa sig yfir þessari neitun Rússa og Kínverja í öryggisráðinu. Kostulegt, vegna þess að Bandaríkjamenn hafa beitt neitunarvaldi sínu 28 sinnum þegar öryggisráðið reynir að koma með ályktanir gegn Ísrael og nýðingsskap þeirra gagnvart Palestínumönnum. Ruglið í Simbabwe er bara barnabrek miðað við þau háþróuðu mannréttindabrot og þau illivirki sem Ísraelar leggja á Palestínumenn. Hvað eru Bandaríkjamenn þá að rífa kjaft?
Sá yðar sem syndlaus er...
![]() |
Rússar reiðir vegna gagnrýni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |